Episodes
Wednesday Oct 28, 2020
Leggur þú þitt af mörkum?
Wednesday Oct 28, 2020
Wednesday Oct 28, 2020
Hvað gerir þú til að leggja þitt af mörkum í þágu umhverfisins? Við getum öll gert betur, og í þessum þætti ræða Ingileif og María það sem þær hafa gert og hvernig við getum tekið skref í átt að grænni framtíð.
Þátturinn er í boði ChitoCare og Playroom.is
Wednesday Oct 21, 2020
Hver er skjátíminn þinn?
Wednesday Oct 21, 2020
Wednesday Oct 21, 2020
Hver er skjátíminn þinn? Er það fyrsta sem þú gerir þegar þú vaknar að opna símann þinn, og það síðasta sem þú gerir áður en þú ferð að sofa? Hvers vegna erum við öll svona miklir fíklar miðlanna? Ingileif og María ræða skuggahliðar samfélagsmiðla og hvernig við getum passað okkur að nota þá bara til góðs.
Þátturinn er í boði ChitoCare og Playroom.is
Tuesday Oct 13, 2020
21. Leiðist þér?
Tuesday Oct 13, 2020
Tuesday Oct 13, 2020
Á tímum eins og þeim sem við lifum núna er mjög auðvelt að leiðast, enda mjög margt leiðinlegt í gangi í heiminum. Hvernig getum við unnið með þetta og látið okkur síður leiðast? Ingileif og María ræða hvað hefur hjálpað þeim í að komast í gegnum síðustu vikur og mánuði.
Þátturinn er í boði ChitoCare og Playroom.is
Monday Oct 12, 2020
20. Hvað eru draumar?
Monday Oct 12, 2020
Monday Oct 12, 2020
Hvað eru draumar og af hverju dreymir okkur? Ingileif og María ræða um drauma, heilann og allt það undarlega sem við mannfólkið vitum svo ótrúlega lítið um.
Þátturinn er í boði ChitoCare og Playroom.is
Tuesday Oct 06, 2020
19. Ert þú með sóttkvíða?
Tuesday Oct 06, 2020
Tuesday Oct 06, 2020
Þvo hendur og spritta, setja upp maska, knúsa engan, forðast mannamót, snerta ekkert og halda sig heima. Það er nú ekki að furða að þetta allt saman valdi einhvers konar kvíða hjá okkur öllum!
Ingileif og María ræða um hinn svokallaða sóttkvíða, hvenær hann er farinn að vera úr hófi og hvernig er best að díla við hann.
Þátturinn er í boði ChitoCare og Playroom.is.
Thursday Oct 01, 2020
18. Pælir þú í pólitík?
Thursday Oct 01, 2020
Thursday Oct 01, 2020
Af hverju er mikilvægt að við pælum í pólitík? Ingileif og María fara yfir það hvers vegna það er nauðsynlegt að mynda sér skoðun, kjósa og taka þátt í lýðræðissamfélagi.
Þátturinn er í boði Chito Care og Playroom.is.
Tuesday Sep 15, 2020
17. Elskar þú þig?
Tuesday Sep 15, 2020
Tuesday Sep 15, 2020
Hvernig getum við elskað okkur meira og hvað er sjálfsást í raun? Ingileif og María reyna að finna svörin við því, sem þær eru samt enn að leita að.
Þátturinn er í boði ChitoCare og Playroom.is
Tuesday Sep 08, 2020
16. Hvernig líður þér?
Tuesday Sep 08, 2020
Tuesday Sep 08, 2020
Hvernig líður þér í dag? Tilfinningar eru alls konar og það er allt í lagi að líða eins og manni líður. Ingileif og María ræða tilfinningar og hvernig þeim finnst best að tækla sínar tilfinningar.
Þátturinn er í boði Chito Care og Playroom.is.
Tuesday Sep 01, 2020
15. Hver er þín upplifun?
Tuesday Sep 01, 2020
Tuesday Sep 01, 2020
Hvers vegna upplifum við hlutina ólíkt? Og hvers vegna platar minnið okkur stundum? Ingileif og María velta upp ýmsum pælingum um upplifanir, og afhjúpa sannleikann á bakvið stórhættulega lífreynslu og sprenghlægilega upplifun á gamlársdag.
Þátturinn er í boði Chito Care og Playroom.is.
Tuesday Aug 25, 2020
14. Ferðu eftir því sem þér er sagt?
Tuesday Aug 25, 2020
Tuesday Aug 25, 2020
Hvers vegna hlýðum við yfirvaldi og förum eftir því sem okkur er sagt? Hlýðni og fylgispekt eru viðfangsefni dagsins, þar sem María fer yfir áhugaverðar rannsóknir og þær Ingileif ræða ýmsa vinkla hlýðni og fylgispektar í samfélaginu, á tímum Covid.
Þátturinn er í boði Chito Care.